Bókunarferli
Skref 1
Skoðaðu úrvalið og veldu flíkina sem þú vilt leigja.
Skref 2
Veldu notkunardag og skiladag. Venjuleg leiga er 2 dagar. Veljirðu 3 daga, bætast 50% ofan á grunnverð.
Skref 3
Bættu við tryggingagjaldi (við mælum eindregið með því).
Skref 4
Smelltu á „Setja í körfu“.
Skref 5
Áður en þú greiðir velurðu sækja- og skilatíma í stúdíóinu okkar.
Skref 6
Lestu skilmálana og staðfestu samþykki áður en þú klárar greiðslu.
Skilmálana finnur þú á síðunni okkar.
Skref 7
Sæktu flíkina á umsömdum tíma í Síðumúla 9, 2. hæð og skilaðu á sama stað á umsömdum tíma.
Bóka mátun
Þú getur líka bókað mátun á síðunni áður en þú leigir, smelltu á „Bóka mátun“ og veldu tíma sem hentar.
Hlökkum til að sjá þig,
ReLúk