Um ReLúk
ReLúk varð til út frá einfaldri hugmynd:
að þú þurfir ekki að eiga allt til þess að líta ótrúlega vel út.
Við trúum því að stíll eigi að vera lifandi, sveigjanlegur og aðgengilegur ekki fastur inni í skáp. Föt eiga að fá að hreyfast, sjást, lifa með mismunandi fólki og mismunandi augnablikum.
Hjá ReLúk finnurðu vel valdar flíkur, hvort sem það er fyrir viðburð, kvöld úti á lífinu, myndatöku eða bara dag þar sem þú vilt mæta aðeins meira þú, án þess að þú þurfir að skuldbinda þig til að eiga réttu flíkina.
ReLúk snýst ekki bara um að leigja föt.
Það snýst um að endurhugsa hvernig við notum tísku. Meira flæði og meiri stíll.
Klæddu þig fyrir augnablikið ekki bara fataskápinn.