Skilmálar
SKILMÁLAR ReLúk
1. Almennt.
Skilmálar þessir gilda um leigu á fatnaði frá ReLúk til viðskiptavinarins (hér eftir „Leigutaki“). Með því að leigja fatnað staðfestir leigutaki að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana. ReLúk áskilur sér rétt til að breyta skilmálum án fyrirvara. Viðskipti eru gerð beint við Leigusala en ekki þriðja aðila sem fatnaðurinn var upprunalega seldur frá.
2. Skilyrði leigu.
- Allir geta leigt fatnað.
- Leiga felur í sér tímabundna notkun á flíkum samkvæmt umsömdum leigutíma. - Leigutaki samþykkir að nota flíkurnar á ábyrgan hátt og ekki valda þeim skemmdum á þeim af ásetningi eða vanrækslu.
- Leigutaka er óheimilt að þrífa eða reyna að laga flíkurnar sjálfur. Þrif eru á ábyrgð ReLúk. Ef skemmd verður á flík eða hún óhreinkast að öðru leyti skal leigutaki tilkynna það strax til ReLúk, sjá nánar kafla 5 um þrif og umhirðu.
3. Leigutími, skil og seinkun.
- Leigutími hefst þegar flík er sótt og lýkur þegar henni er skilað á umsömdum tíma.
- Leigutaki fær afhendingartíma staðfestan við bókun og skal skila flík á umsömdum tíma.
- Flík er aðeins tekin frá á tilsettum tíma eftir að greiðsla hefur borist, ekki fyrr.
- Ef flík er ekki skilað á réttum tíma, greiðist fullt leigugjald fyrir viðkomandi flík á hverjum degi þar til henni er skilað.
- Ef Leigutaki vill framlengja leigutímann, þarf hann að hafa samband við ReLúk með að minnsta kosti 24 klst fyrirvara, og er framlenging háð samþykki ReLúk.
- Leigutaki ber ábyrgð á flíkinni á meðan leigutími stendur yfir.
- Leigutaka er bannað að selja eða leigja flíkina áfram, og hann eignast ekki flíkina eftir viðskiptin.
4. Tryggingagjald, gjöld og ábyrgð.
- Leigutaki hefur val um að greiða tryggingagjald að upphæð 2000 kr.
- Tryggingagjaldið nær yfir smávægilega blettahreinsun og léttar skemmdir, svo sem lausar tölur eða slitna sauma, en fæst ekki endurgreitt.
- Ef Leigutaki greiðir tryggingagjaldið, þarf hann ekki að greiða aukalega fyrir þrif eða viðgerðir á minniháttar skemmdum sem verða við eðlilega notkun.
- Ef flík skemmist meira en tryggingagjaldið nær yfir, eða ef ekki er hægt að þrífa hana að fullu, ber Leigutaki ábyrgð á að greiða fullt verð hennar.
-
Hafi Leigutaki ekki greitt tryggingagjaldið og flíkin skilar sér óhrein eða með smávægilegum skemmdum, verður innheimt aukagjald fyrir hreinsun og viðgerðir. Innheimt gjald miðast við það verð sem kostar að laga eða hreinsa flíkina, auk þess sem leigutaki gæti þurft að greiða ReLúk tapaða leigu ef meðferð leigutaka hefur áhrif á önnur viðskipti leigusala.
- Þess vegna mælum við eindregið með að greiða tryggingagjaldið til að forðast óvæntan aukakostnað.
5. Þrif og umhirða.
- Leigutaka er bannað að þrífa eða reyna að laga flík sjálfur.
- Ef flík skemmist eða óhreinkast, skal leigutaki tilkynna það strax til Leigusala sem metur hvort unnt sé að lagfæra flíkina eða hreinsa.
- ReLúk sér alfarið um þrif og viðgerðir á flíkum.
6. Afbókun og endurgreiðsla.
- Ef leigutaki vill hætta við bókun, skal hann láta vita með að minnsta kosti 48 klst. fyrir umsamdan afhendingartíma til að fá fulla endurgreiðslu.
- Ef afbókun berst með minna en 48 klst. fyrirvara, áskilur ReLúk sér rétt til að neita endurgreiðslu á leiguverði.
- Tryggingagjald fæst ekki endurgreitt, óháð því hvenær afbókun á sér stað.
7. Tjón, tap og skemmdir á flík.
- Leigutaki ber fulla ábyrgð á flíkinni á meðan hún er í hans vörslu.
- Ef flík týnist eða er stolið á meðan hún er í vörslu leigutaka, ber hann ábyrgð á að greiða fullt verð hennar.
- ReLúk metur tjónið og ákveður verð flíkurinnar miðað við upprunalegt kaupverð, slit og aldur flíkurinnar.
8. Breytingar á vörum og skilmálum.
- ReLúk áskilur sér rétt til að breyta vörum, vöruupplýsingum og skilmálum án fyrirvara.
- Allar upplýsingar um vörur og verð á síðunni eru birtar með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur.
9. Ágreiningur og gildandi lög.
- ReLúk fer með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
- Komi til ágreinings milli aðila, verður leitast við að leysa hann með samkomulagi. Takist það ekki skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.